| Forsíða | ||
| Kátir dagar 2010 | ||
| Um Langanesbyggð | ||
| Stjórnsýsla | ||
| Fréttabréf | ||
| Stofnanir | ||
| Atvinnulíf og þjónusta | ||
| Almannavarnir | ||
| Áhugaverðar síður | ||
| Ljósmyndasafn | ||
| Póstþjónn | ||
| Um vefinn | ||
| Gestabók | ||
| English | ||
Stjórnsýsla
Starfsfólk vantar á Eyrina
Veitingastaðurinn Eyrin auglýsir eftir starfsfólki til starfa frá 20. ágúst.Um er að ræða kvöld- og helgarstörf, 20 - 60 % vinna. Tilvalið sem aukavinna með skóla eða annari vinnu.
Upplýsingar gefur Nanna í síma 468-1250 / 868-8647 eða nannast@simnet.is.
Lausar stöður við Grunnskóla Þórshafnar
Eftirtaldar stöður eru lausar við Grunnskóla Þórshafnar:Stuðningsfulltrúa vantar í 60% stöður frá og með 23. ágúst.
Skólaliða vantar í 60% stöðugildi frá og með 16. ágúst.
Baðvörður stúlkna 50% stöðugildi frá og með 23. ágúst.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst. Nánari upplýsingar veita Arnfríður Aðalsteinsdóttir skólastjóri, sími 899-3480 og Anna Hjaltadóttir deildarstjóri sérkennslu í síma 895-1758 / annah@langanesbyggd.is.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Langanesbyggðar, Fjarðarvegi 3, 680 Þórshöfn.
Drottningareið Snæfaxa 2010
Hestar orðnir frískir og veðurspáin svona glimrandi, svo blásið skal til kvennaferðar Snæfaxa þetta árið á föstudaginn næstkomandi kl 18:00.
Lagt verður af stað frá Holti en alsendis óvíst hvert leiðin liggur!
Skráning er hjá nefndarkonum; Hildi s: 895 0834, Jóhönnu s: 892 0209 eða Steinu s: 849 4112 eigi síðar en á fimmtudagskvöld.
Ef drottningu vantar reiðskjóta er einnig hægt að hafa samband við sömu konur og reynt verður eftir föngum að aðstoða með það.
Þátttökugjald er 3.000 kr. Innifalið er matur, lítill drykkur og ef til vill eitthvað fallegt! Töskunesti verður hver og ein að útvega sjálf.
Allar konur eldri en 16 eru velkomnar!
Flokkun og endurvinnsla sorps að hefjast í Langanesbyggð
Þessa dagana er flokkun sorps að hefjast á heimilum í Langanesbyggð. Markmiðið með flokkuninni er að uppfylla kröfur um úrbætur í umhverfismálum og bæta þjónustu við íbúa. Öll heimili munu flokka í þrjár tunnur, almennt sorp fer í gráa tunnu, endurvinnanlegt sorp í græna tunnu og lífrænt sorp í brúna tunnu. Lífræna sorpið verður jarðgert og endurvinnsla verður stóraukin. Áætlun er að urðun verði framvegis aðeins brot af því sem áður var.Tunnurnar eru að birtast heim við hvert hús og íbúar að átta sig á hvernig best er að standa að flokkuninni. Ýmsir nágrannar hafa komið sér saman um samnýtingu á tunnu þar sem það hentar; sums staðar dugar eitt sett af tunnum fyrir tvö heimili eða jafnvel fleiri og þá er bara að finna út hvaða fyrirkomulag er best.
Það eru vinsamleg tilmæli að tunnurnar séu hafðar sem næst götu svo framkvæmanlegt sé að sækja þær og tæma þegar þar að kemur.
Hér má sjá allar upplýsingar um hvernig flokkað er í grænu tunnuna, brúnu tunnuna og gráu tunnuna.
Íbúum Langanesbyggðar er óskað til hamingju með þetta heillaskref til bættrar framtíðar.
Allir kátir á Kátum dögum
Kátum dögum lauk á sunnudaginn í góðu veðri um alla Langanesbyggð og nágrenni. Það var ekki sömu sögu að segja um veðrið alla Kátu dagana, því vegna úrkomu á laugardaginn var tekin sú ákvörðun að flytja útimarkaðinn inn í íþróttahús ásamt þeim útiatriðum sem hægt var að hýsa. Allt tókst þetta vel með samstilltu allra og jákvæðu hugarfari sem fyllti húsin af kæti. Leikhópurinn Lotta sýndi Hans klaufa í félagsheimilinu í stað þess að vera úti eins og þau kjósa helst og lasertag var spilað í íþróttahúsinu eftir að markaðnum lauk. Langanesvíkingurinn var hins vegar haldinn úti enda ástæðulaust fyrir víkinga að gefast upp fyrir smávægilegri úrkomu.Hátíðin hófst á þriðjudagskvöldið í síðustu viku og stóð með litlum hléum til sunnudagssíðdegis. Þátttaka var góð í öllum þeim fjölmörgu viðburðum sem prýddu dagskrána og er það mál manna að hátíðin í heild hafi heppnast vel.
Allir þeir fjölmörgu sem lögðu hönd á plóginn til að hátíðin gæti farið fram fá bestu þakkir fyrir sitt framlag. Einnig þökkum við gestum okkar kærlega fyrir komuna.
Útimarkaður inni
Fyrirhugaður útimarkaður á Kátum dögum sem átti að halda í skrúðgarði Þórshafnar í dag hefur verið fluttur inn vegna ofurlítillar rigningar og eru hinir ýmsu seljendur nú að koma sér fyrir með fjölbreyttar söluvörur sínar í íþróttamiðstöðinni. Þar mun kenna ýmissa grasa í dag eins og áður hefur komið fram og andi Kátra daga verður þar ríkandi.Í íþróttamiðstöðinni verður líka hægt að fá upplýsingar um aðra viðburði í dag sem flestir halda sínu striki. Veðrið á Þórshöfn er milt og alls ekki slæmt til útiveru ef fólk er rétt klætt. En það þótti of vott fyrir útimarkaðsvarning og því var ákveðið að fara inn í íþróttamiðstöðina og fylla hana af kæti sem aldrei fyrr.
Verið velkomið í gleðina í Langanesbyggð!
Engin leiðsögn á Gunnólfsvíkurfjalli í dag
Kátir dagar fara vel fram og góð mæting hefur verið á þá viðburði sem afstaðnir eru. Fólk lætur ekkert á sig fá þó dálítil væta sé á svæðinu í dag. Þessa stundina eru 10 þátttakendur í ljósmyndamaraþoni Kátra daga og Canon að taka myndir, en verðlaun verða afhent á morgun kl. 13:30 á torginu í skrúðgarðinum.En þar sem útsýni af Gunnólfsvíkurfjalli er ekkert mun leiðsögumaður ekki verða þar síðdegis í dag eins og auglýst var, þó fólki sé að sjálfsögðu frjálst að ganga á fjallið. Vonandi tekst Ferðafélaginu Norðurslóð að skipuleggja göngu á fjallið síðar, þegar útsýni er betra.
Önnur dagskrá Kátra daga heldur sér ótrufluð.
Túpílakatónleikar í kvöld
Í kvöld, fimmtudaginn 15. júlí kl.21:00 heldur þingeyska tríóið Túpílakar tónleika í Þórsveri á Þórshöfn.Tónlist Túpílaka er þjóðlagakennd, allt frá kórlögum og yfir í urrandi poppsmelli. Textarnir eru ýmist skemmtilegt bull, eða hárbeitt þjóðfélagsád...bull. Í bland við grafalvarlegheit.
Tríóið inniheldur þau Margréti Sverrisdóttur leikkonu, Sigurð Illugason málara og Odd Bjarna Þorkelsson ljótan hálfvita með meiru.
Myndin hér til hliðar er ekki prjónauppskrift eða úr prjónablaði, heldur Túpílakar huggulegir á hafnargarði einhvers staðar á landinum.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur, veitingasala á staðnum.
Fleiri fréttir
Viðburðadagatal
|
Fundargerðir |
||
Fundarg. Langanesb. 2010
|
||








